Nýjar barnabækur

Tvær nýjar barnabækur voru að koma út.

Asnaskóli
Asninn Sokki er ekki öruggur á reglunum í Asnaskólanum. Hinir asnarnir eru svo þrjóskir... eins og ... ösnum er líkt! En Sokki vill ekki alltaf vera þrjóskur. Þegar hræðilegar hamfarir skella á, er það aðeins Sokki sem getur bjargað hinum ösnunum frá þrjósku sinni og sýnt þeim að stundum er gott að vera öðruvísi. Frábær saga með gamansömu ívafi!

baasna2

Stóri ísbjörn litli ísbjörn
Lítinn ísbjarnarhún langar til að verða stór og fljótur að hlaupa eins og mamma hans. Á kalda heimskautasvæðinu sýnir ísbjarnarmamma húninum sínum hvernig það er að vera stór. Það er yndislegt, en litli húnninn kemst að því að hann er ekki alveg tilbúinn til að verða stór strax. Það hefur líka sína kosti að vera lítill.
Strjúktu mjúku feldina á ísbjörnunum í þessari fallegu metsölubók.

baisbj2