Leyndardómar sjóræningjakafteins

Steinegg var að senda frá sér þennan flotta sjóræningjakassa.

Leyndardómar sjóræningjakafteins
Í þessum vígamannskassa er allt sem þarf til að gerast harðsvíraður sjóræningi. Kassinn hefur gersemar að geyma, þar á meðal sjóferðabók kafteinsins ógurlega, Vernharðs Víghöfða. Hún inniheldur alla hans myrku leyndardóma og er um leið fyrirtaks kennslubók fyrir alla upprennandi sjóræningja. Uppgötvaðu uggvænlega leyndardóma úthafanna sjö. Í kassanum eru auk bókarinnar, kort, gullpeningar, krókur, leppur, flöskuskip, höfuðklútur, húðflúr, rýtingur og sjónauki.
basjoropin