Litlu sponsin

Steinegg hefur sent frá sér fjórar nýjar bækur í bókaflokknum Litlu sponsin.
Bækurnar eru allar í mjög litlu broti, 368 bls. innbundnar í öskju.

DJARFAR DÖMUR
Handa þeim óskammfeilnu, daðurgjörnu eða veraldarvönu - öllum þeim sem kunna að meta gamanið, unaðinn og allan bjánaganginn í sambandi við ástalífið.
Syndsamlega stríðin og fyndin smábók!

SKRÍTLUSKJÓÐA
Skrítluskjóða kemur þér til að hlæja alla daga. Meira en 250 skrítlur og skopmyndir Bills Stott, í mátulega stórri skrítlubók.
Handa krökkum á öllum aldri.

VON
Hér eru 167 spakmæli eða fleyg orð sem færa birtu vonar inn í dapran huga og blása kjarki í brjóst. Góð vinargjöf.

ZEN PERLUR
Þessar tilvitnanir í spakvitra Zen-höfunda hafa verið valdar með tilliti til einfaldleika þeirra og skýrrar hugsunar. Þær leiða okkur til aukinnar meðvitundar, nýrrar sýnar á raunveruleikann, til sannrar sjálfsþekkingar.

djarfar skritlu von zen