Nýjar barnabækur

Þrjár nýjar barnabækur voru að koma út.

Sofdu-----Vertuekki-----Vinirnir

Sofðu rótt elskan mín
Fjórar hrífandi myndabókasögur í safnútgáfu með einstökum teikningum. Frábær bók til að lesa með börnum fyrir svefninn.

Vertu ekki hræddur við myrkrið bangsi litli!
Bangsi, íkorni og broddgöltur hafa verið að tína safarík ber allan daginn og nú er kominn tími til að fara heim. Þeir leggja af stað í gegnum skóginn en sólin er að setjast og bangsi er hræddur við myrkrið!
Það mun gleðja börnin að fylgjast með bangsa þegar hann uppgötvar að myrkrið er ekki eins hræðilegt og það leit út fyrir í fyrstu. Heillandi saga með blikandi ljósum sem koma á óvart að lokum.

Vinirnir í snjónum
Þegar bangsi litli vaknar snemma af djúpum vetrarsvefni kemur honum dásamlegt undur á óvart – SNJÓR! Bangsi litli veltir sér og rennir, stappar og dansar. Hann finnur fljótlega fyrir því að það er ekkert gaman að leika sér án vinar. Hann ákveður því að búa til snjókarl . . .
Heillandi saga um vináttu, gerð sérstaklega töfrandi með glitrandi snjókarli alls staðar í bókinni.