Röskva

Unglingabókin Röskva eftir Kolbrúnu Aðalsteinsdóttur er að koma út hjá Steinegg.
Röskva er hörkuspennandi og kynngimögnuð unglingasaga.

Roskva

Gátur og meiri gátur

Ný gátubók er að koma út hjá Steinegg. Bókin sem ber titilinn Gátur og meiri gátur hefur að geyma 600 gátur fyrir fólk á öllum aldri.

Gatur

Incredible Iceland

Glæsileg ljósmyndabók um Ísland er að koma út hjá Steinegg. Bókin nefnist Incredible Iceland og eru höfundar, þau Pálmi Bjarnason, Sigrún Kristjánsdóttir, Skúli Þór Magnússon og Hallsteinn Magnússon sem mynda hópinn Ljósbrot. Incredible Iceland er gefin út á ensku. Bókin er 96 bls. í stóru broti og mikið lagt í vandaða vinnslu og frágang.

Incredible Iceland klippt

Óður lífsins

Út er að koma hjá Steinegg falleg gjafabók sem hefur að geyma speki frumbyggja Ameríku.
Titill bókarinnar er
Óður lífsins og er bókin ríkulega myndskreytt.

Odur lifsins LQ

Spakmæli dagsins

Tvær dagatalsbækur voru að koma út. Þetta eru bækurnar Speki dagsins og Kyrrð dagsins.
Hvor bók hefur að geyma 365 spakmæli fyrir alla daga ársins.

gorspegorkyr

Jólasveinn og týnda bréfið

Jólasveinabók var að koma út hjá Steinegg. Þetta er bókin Jólasveinn og týnda bréfið og hefur bókin að geyma mikið af bréfum, flipum og gluggum til að opna og loka. Frábær bók fyrir börnin.

bajolb

Nýjar gjafabækur

Tvær nýjar gjafabækur voru að bætast við. Þetta eru bækurnar Elsku mamma og Elsku pabbi.

elsmam-----elspab

Nýjar barnabækur

Tvær skemmtilegar barnabækur voru að koma út.

bafadm-----bahljod

Lífið er dásamlegt

Út eru að koma sex nýjar gjafabækur frá Helen Exley.

lifpab--lifdag--lifmam--lifvin--lifhei--lifhal

Gjafabækur

Fimm nýir gjafabókatitlar frá Helen Exley voru að koma út.

elsamm---elsfræ---elsson---elsvko---elsvon

Nýjar gjafabækur

Út voru að koma sex nýjar gjafabækur frá Helen Exley.

avtahu---avafmæ---avmamm

Gjafavara

Vorum að fá nýja sendingu af drykkjarkrúsum, seglum og kertum frá Helen Exley.
Vörurnar koma með nýrri áprentun og eldri gerðir detta út jafnóðum og þær klárast af lager.

kerdót2010segást2010kervin2010

Bókamerki

Vorum að fá 8 gerðir af gullfallegum bókamerkjum. Bókamerkin eru með steindu gleri á silfurplötu.
Sjá nánar
hér.

23[1]18.1[1]22[1]21[1]

Nýjar barnabækur

Þrjár nýjar barnabækur voru að koma út.

Sofdu-----Vertuekki-----Vinirnir

Sofðu rótt elskan mín
Fjórar hrífandi myndabókasögur í safnútgáfu með einstökum teikningum. Frábær bók til að lesa með börnum fyrir svefninn.

Vertu ekki hræddur við myrkrið bangsi litli!
Bangsi, íkorni og broddgöltur hafa verið að tína safarík ber allan daginn og nú er kominn tími til að fara heim. Þeir leggja af stað í gegnum skóginn en sólin er að setjast og bangsi er hræddur við myrkrið!
Það mun gleðja börnin að fylgjast með bangsa þegar hann uppgötvar að myrkrið er ekki eins hræðilegt og það leit út fyrir í fyrstu. Heillandi saga með blikandi ljósum sem koma á óvart að lokum.

Vinirnir í snjónum
Þegar bangsi litli vaknar snemma af djúpum vetrarsvefni kemur honum dásamlegt undur á óvart – SNJÓR! Bangsi litli veltir sér og rennir, stappar og dansar. Hann finnur fljótlega fyrir því að það er ekkert gaman að leika sér án vinar. Hann ákveður því að búa til snjókarl . . .
Heillandi saga um vináttu, gerð sérstaklega töfrandi með glitrandi snjókarli alls staðar í bókinni.

Ný gjafavara

Vorum að fá 23 gerðir af nýrri gjafavöru. Skoðið úrvalið.

0209----------8929----------891603

Gjafavara

Vorum að fá nýja sendingu af hinum vinsælu gjafavörum frá Helen Exley.
Fengum einnig nýjar gerðir því Sonur og Vinkona bættust við í kertum, drykkjarkönnum og hjartaseglum.

minnikersonminnisegvko

Moments in Iceland

moments
Steinegg er að setja á markað nýja ljósmyndabók fyrir ferðamenn. Bókin Moments in Iceland er öðruvísi bók.
Bókin sem er þríhyrningur að stærð hefur að geyma fallegar ljósmyndir frá Íslandi. Myndirnar eins og bókin sjálf eru skornar í þríhyrning. Skemmtilegur minjagripur um Ísland.

Hugsýki - nýr spennutryllir eftir Chelsea Cain

Hugsýkilitil
Í Hugsýki er allur pakkinn: óttalaus og duttlungafull kvenhetja, tilvistarkreppt lögga og einhver mest hrollvekjandi raðmorðingi bókmenntasögunnar.
Hugsýki er algjörlega ógleymanleg.
Meira

Nýjar barnabækur

Tvær nýjar barnabækur voru að koma út.

baalve------bapeys

Alveg einstök ósk
Fjórar hrífandi myndabókasögur í safnútgáfu með einstökum teikningum. Frábær bók til að lesa með börnum aftur og aftur.

Stóra peysan bangsanna
Stóra bangsa þykir vænt um röndóttu peysuna sína. Hún er hlý og mjúk. Og hann heldur mikið upp á hana. En peysan passar ekki lengur á stóra bangsa svo hann gefur bróður sínum hana. Litli bangsi er ánægður en þegar hann sóðar peysuna út, verður stóri bangsi mjög reiður. Verða bræðurnir aftur vinir? Þessi hjartfólgna saga endurspeglar sérstakt samband tveggja bangsabræðra. Fallegar teikningar með mjúku filti til að strjúka og snerta.

Another View of Iceland

Steinegg er að setja á markað glæsilega ljósmyndabók á 6 tungumálum. Bókin Another View of Iceland fangar ótrúlega liti og andstæður íslenskrar náttúru. Höfundar bókarinnar eru þau Hallsteinn Magnússon, Pálmi Bjarnason, Sigrún Kristjánsdóttir og Skúli Þór Magnússon sem mynda hópinn Ljósbrot. Með bókinni fylgir geisladiskur með 250 völdum ljósmyndum.

AnotherView2+diskur

Nýjar gjafavörur

Núna eru að koma á markaðinn margar gerðir af gjafavöru frá Helen Exley. Þetta eru DRYKKJARKÖNNUR, HJARTALAGAÐIR SEGLAR, ILMKERTI, GJAFAPOKAR og MINNISBÆKUR.
Átta gerðir af hverju, alls 40 nýjar vörur.

segyndA

Ný tilboð

Nokkur ný tilboð eru komin inn á TILBOÐSSÍÐU. Meðal annarra tilboða eru bækurnar FANGAÐU TÍMANN, SNJÓENGILLINN og BESTA KNÚS Í HEIMI nú á tilboði.

P9163911-------snjoengill-------knus05


Leyndardómar sjóræningjakafteins

Steinegg var að senda frá sér þennan flotta sjóræningjakassa.

Leyndardómar sjóræningjakafteins
Í þessum vígamannskassa er allt sem þarf til að gerast harðsvíraður sjóræningi. Kassinn hefur gersemar að geyma, þar á meðal sjóferðabók kafteinsins ógurlega, Vernharðs Víghöfða. Hún inniheldur alla hans myrku leyndardóma og er um leið fyrirtaks kennslubók fyrir alla upprennandi sjóræningja. Uppgötvaðu uggvænlega leyndardóma úthafanna sjö. Í kassanum eru auk bókarinnar, kort, gullpeningar, krókur, leppur, flöskuskip, höfuðklútur, húðflúr, rýtingur og sjónauki.
basjoropin

Gjöfin mesta er ástin

Þessi glæsilega bók um ástina var að koma út hjá Steinegg.
Bókin er stór og vegleg. Vandað var mjög til allrar vinnslu hennar.

Gjöfin mesta er ástin
Bók þessi hefur að geyma sumt af því besta sem skrifað hefur verið um ástina. Ástin er stórkostleg. Hún gæðir lífið töfraljóma og fegrar allt í kringum sig. Ástin er endalaust vor, sem krefst hins algjöra, hins ómögulega. Hún er óstöðvandi í dulúð sinni og veldi.
Yndisleg bók handa elskendum.

Gjöfin mesta

Fangaðu tímann og Kærleikur fyrir okkar öld

Tvær nýjar gjafabækur voru að koma út.
Bækurnar henta báðar einkar vel til gjafa við flest tækifæri.

Fangaðu tímann
Fangaðu tímann fjallar um það að taka sér tíma frá annasömu og flóknu lífi, að sitja kyrr og njóta heimilisins, anda rólega, una sér úti í náttúrunni, fanga tímann og vera til. Orð vitrustu rithöfunda og hugsuða færa okkur aftur tilfinninguna fyrir dásemdum lífsins, fegurð og friði.

P9163911

Kærleikur fyrir okkar öld
Bók þessi hefur að geyma hrífandi tilvitnanir sem vitna um djúpstæð áhrif kærleikans á líf okkar og þjóðfélagið sem við hrærumst í. Kærleikurinn megnar að breyta öllu: ósanngirni, ranglæti, þjáningu, jafnvel að hrekja brott ógnir styrjaldar. Kærleikurinn er, þegar allt kemur til alls, öllu öðru yfirsterkari hér á jörðu.

P9163913

Nýjar barnabækur

Tvær nýjar barnabækur voru að koma út.

Asnaskóli
Asninn Sokki er ekki öruggur á reglunum í Asnaskólanum. Hinir asnarnir eru svo þrjóskir... eins og ... ösnum er líkt! En Sokki vill ekki alltaf vera þrjóskur. Þegar hræðilegar hamfarir skella á, er það aðeins Sokki sem getur bjargað hinum ösnunum frá þrjósku sinni og sýnt þeim að stundum er gott að vera öðruvísi. Frábær saga með gamansömu ívafi!

baasna2

Stóri ísbjörn litli ísbjörn
Lítinn ísbjarnarhún langar til að verða stór og fljótur að hlaupa eins og mamma hans. Á kalda heimskautasvæðinu sýnir ísbjarnarmamma húninum sínum hvernig það er að vera stór. Það er yndislegt, en litli húnninn kemst að því að hann er ekki alveg tilbúinn til að verða stór strax. Það hefur líka sína kosti að vera lítill.
Strjúktu mjúku feldina á ísbjörnunum í þessari fallegu metsölubók.

baisbj2

Nýjar bækur

Steinegg hefur sent frá sér fjórar nýjar bækur í hinum geysivinsæla bókaflokk Litlu sponsin.
Bækurnar eru allar í mjög litlu broti, 368 bls. innbundnar í öskju.

HAMINGJAN ER GJÖF
Yndislegt safn... hundruð tilvitnana um frið og vináttu, hláturinn og lífsgleðina einu og sönnu - sannkallaður fjársjóður.

HUNDAR
Stórskemmtilegar myndir gera þessa litlu hundabók alveg einstaka. Hér er að finna fjölbreyttar tilvitnanir, gamansemi, blíðu og angurværð. Gjöf sem gleður alla hundavini.

KETTIR
Þessar skondnu og yndislegu kattamyndir og tilvitnanirnar sem þeim fylgja hitta þig beint í hjartastað. Þetta bókarkríli á eftir að heilla marga.

VINÁTTA...
194 dásamleg ummæli sem fallið hafa um vináttu. Skemmtileg smágjöf.

hamingja---hundar---spoket---vinatta

Litlu sponsin

Steinegg hefur sent frá sér fjórar nýjar bækur í bókaflokknum Litlu sponsin.
Bækurnar eru allar í mjög litlu broti, 368 bls. innbundnar í öskju.

DJARFAR DÖMUR
Handa þeim óskammfeilnu, daðurgjörnu eða veraldarvönu - öllum þeim sem kunna að meta gamanið, unaðinn og allan bjánaganginn í sambandi við ástalífið.
Syndsamlega stríðin og fyndin smábók!

SKRÍTLUSKJÓÐA
Skrítluskjóða kemur þér til að hlæja alla daga. Meira en 250 skrítlur og skopmyndir Bills Stott, í mátulega stórri skrítlubók.
Handa krökkum á öllum aldri.

VON
Hér eru 167 spakmæli eða fleyg orð sem færa birtu vonar inn í dapran huga og blása kjarki í brjóst. Góð vinargjöf.

ZEN PERLUR
Þessar tilvitnanir í spakvitra Zen-höfunda hafa verið valdar með tilliti til einfaldleika þeirra og skýrrar hugsunar. Þær leiða okkur til aukinnar meðvitundar, nýrrar sýnar á raunveruleikann, til sannrar sjálfsþekkingar.

djarfar skritlu von zen

Tilboð

Ný tilboð eru nú komin inn á tilboðssíðu. Happy Tilboðin munu breytast reglulega.

Verið velkomin

Verið velkomin á nýja heimasíðu bókaútgáfunnar Steinegg ehf. www.steinegg.is

Fréttir verða ávallt á forsíðu og bætast nýjar við eftir atvikum.
Síðan er í þróun og væri fínt að fá álit ykkar á síðunni, því sem er gott og hvað mætti
betur fara.