Nýjar barnabækur

Tvær nýjar barnabækur voru að koma út.

baalve------bapeys

Alveg einstök ósk
Fjórar hrífandi myndabókasögur í safnútgáfu með einstökum teikningum. Frábær bók til að lesa með börnum aftur og aftur.

Stóra peysan bangsanna
Stóra bangsa þykir vænt um röndóttu peysuna sína. Hún er hlý og mjúk. Og hann heldur mikið upp á hana. En peysan passar ekki lengur á stóra bangsa svo hann gefur bróður sínum hana. Litli bangsi er ánægður en þegar hann sóðar peysuna út, verður stóri bangsi mjög reiður. Verða bræðurnir aftur vinir? Þessi hjartfólgna saga endurspeglar sérstakt samband tveggja bangsabræðra. Fallegar teikningar með mjúku filti til að strjúka og snerta.