Hundasýningar

Íslandssólar Grímur fór á tvær hundasýningar um helgina 19. - 20. janúar 2008. Hann fékk mjög góða dóma og vann til verðlauna. Á fyrri sýningunni fékk hann 1. einkunn, mjög góða umsögn og íslenskt meistarastig. Var hann að auki valinn besti rakkinn á sýningunni og var síðan valinn annar besti hundur sýningarinnar. Á seinni sýningunni fékk hann 1. einkunn, mjög góða umsögn og meistaraefni. Var hann einnig valinn annar besti rakkinn í opnum keppnisflokk.