2009

Allir hvolparnir farnir

Allir hvolparnir eru búnir að fá mjög góð framtíðarheimili og fóru sumir í löng ferðalög til sinna nýju heimkynna:

Ísrima Káta fór í Mosfellsbæinn
Ísrima Bjarki fór til Akureyrar
Ísrima Snædís fór til Canada
Ísrima Harpa fór í Mosfellsbæinn
Ísrima Týra fór til Danmerkur
Ísrima Ugla fór til USA

Fréttir af hvolpunum

Hvolparnir fóru til dýralæknis í gær og voru örmerktir, heilbrigðisskoðaðir og bólusettir. Allir voru "Fínir hvolpar" að sögn dýralæknis.
Allir hvolparnir nema Bjarki eru seldir.

Hér er mynd af Ísrima Bjarka

Hvolparnir sjö vikna gamlir

Nú eru hvolparnir sjö vikna gamlir og allir seldir nema tveir. Ísrima Harpa og Ísrima Bjarki eru enn að leita sér að framtíðarheimili. Áhugasamir hafi endilega samband í síma 899-2121 eða eggert@steinegg.is

Hér er mynd af Ísrima Hörpu og Ísrima Bjarka.

Hvolpar fæddust 19. mars 2009

Töfra Hekla eignaðist sex hvolpa þann 19. mars 2009. Allt gekk vel og hvolpum og móður heilsast vel. Það komu fimm tíkur og einn rakki.
Áhugasamir eru hvattir til að hafa samband sem fyrst í síma 899-2121 eða eggert@steinegg.is því þegar eru farnar að berast pantanir í hvolpana.

Hvolpar væntanlegir í mars 2009

Töfra Hekla og Íslandssólar Grímur eiga von á hvolpum í mars 2009.
Þetta verður þeirra annað got því þau eignuðust einnig hvolpa í janúar 2008.