2008

Ísrima hvolpar fá góða dóma

Tveir hvolpar úr Ísrima ræktun mættu á Hundasýningu HRFÍ sem haldin var 27. - 28. september 2008 og fengu þeir báðir mjög góða dóma.
Foreldrar hvolpanna eru Töfra Hekla og Íslandssólar Grímur.
Ísrima Máni varð besti hvolpur tegundar (6-9 mánaða) og fékk Heiðursverðlaun. Hann varð einnig 3. besti hvolpur sýningar.
Ísrima Hugljúfur varð 3. besti rakkinn í hvolpaflokk (6-9 mánaða).


Ísrima Máni og Ísrima Hugljúfur

Íslandssólar Grímur fékk sitt annað Meistarastig

Íslandssólar Grímur tók þátt í Sumarsýningu Hundaræktarfélags Íslands 28. júní 2008. Hann fékk mjög góða dóma og vann til verðlauna. Hann fékk dóminn "Excellent" og var valinn besti rakki tegundar og annar besti hundur tegundar. Hann fékk einnig mjög góða umsögn og Íslenskt meistarastig.

Allir hvolparnir seldir

Nú eru allir hvolparnir seldir og búnir að fá mjög góð framtíðarheimili.

Einn hvolpur eftir

Nú er Ísrima Máni búinn að fá gott framtíðarheimili í Garðabæ svo Ísrima Moli er einn eftir. Vonandi finnur hann framtíðarheimili fljótlega.
Hér er mynd af Mola.

Hvolparnir 8 vikna

Nú eru hvolparnir orðnir 8 vikna og þrír þeirra farnir til nýrra eigenda. Þeir Máni og Moli eru enn óseldir og tilbúnir til afhendingar. Áhugasömum bent á að hafi samband sem fyrst í síma 899-2121 eða eggert@steinegg.is Hér er mynd af þeím Ísrima Mána og Ísrima Mola.


Hvolpafréttir

Nú eru hvolparnir alveg að verða 8 vikna. Þeir fóru til dýralæknis í gær í heilbrigðisskoðun, parvósprautun, ormahreinsun og örmerkingu. Dýralæknirinn talaði um þetta væru sérstaklega fínir hvolpar. Hér eru myndir af þeim Ísrima Mola og Ísrima Mána sem enn eru óseldir:

___

Hvolparnir 6 vikna gamlir

Nú eru hvolparnir 6 vikna og tveir þeirra eru nú seldir og eigendur þeirra hafa gefið þeim ný nöfn. Þetta eru þau Ísrima Klossi sem nú heitir Ísrima Hugljúfur og Ísrima Dúfa sem nú heitir Ísrima Freyja. Enn eru þau Ísrima Fluga, Ísrima Moli og Ísrima Máni að leita sér að framtíðarheimili. Áhugasamir hafi endilega samband í síma 899-2121 eða eggert@steinegg.is
Hér er mynd af þeim sem óseldir eru. Talið frá vinstri: Ísrima Fluga, Ísrima Máni og Ísrima Moli.

Hvolparnir fimm vikna gamlir

Nú eru hvolparnir fimm vikna og mjög gaman að fylgjast með þeim þroskast og dafna með hverjum deginum. Nýjum QuickTime video myndum af hvolpunum bætt við á Video síðu. Ef ykkur vantar QuickTime 7 spilara er hægt að nálgast henn frítt hér.

Hvolparnir 4 vikna gamlir

Hvolparnir eru núna 4 vikna gamlir og heldur betur farið að færast fjör í leikinn. Þeir eru farnir að hlaupa um allt og aðeins byrjaðir að borða hvolpamat með móðurmjólkinni.

Hvolparnir þriggja vikna gamlir í dag

Hvolparnir eru þriggja vikna í dag og hafa þroskast mjög hratt síðustu vikuna. Núna eru þeir aðeins að byrja að leika sér saman. Þeir hafa þyngst vel áfram og hafa nú allir meira en fimmfaldað fæðingarþyngd sína.

Hvolparnir eru tveggja vikna í dag

Hvolparnir eru nú tveggja vikna gamlir og hafa allir næstum fjórfaldað fæðingarþyngd sína. Þeir eru farnir að reyna að ganga og Dúfa varð fyrst til að opna augun í morgun og núna seinnipartinn opnaði Moli líka augun sín.


Hvolparnir viku gamlir í dag

Hvolparnir dafna allir mjög vel. Þeir eru allir búnir að tvöfalda þyngd sína og vel það.
Hekla og Grímur standa sig mjög vel í foreldrahlutverkinu.

Hvolparnir þyngjast vel

Nú eru hvolparnir orðnir 3 daga gamlir og hafa þeir allir þyngst mjög vel. Monika í Töfra-ræktun ráðlagði mér hvernig best væri að haga fóðrun Heklu og greinilegt er að þau ráð hafa virkað vel því Hekla hefur næga mjólk handa öllum.


Hvolpar

Töfra Hekla og Íslandssólar Grímur eignuðust fimm fallega hvolpa í dag. Þrjá rakka og tvær tíkur.

Hundasýningar

Íslandssólar Grímur fór á tvær hundasýningar um helgina 19. - 20. janúar 2008. Hann fékk mjög góða dóma og vann til verðlauna. Á fyrri sýningunni fékk hann 1. einkunn, mjög góða umsögn og íslenskt meistarastig. Var hann að auki valinn besti rakkinn á sýningunni og var síðan valinn annar besti hundur sýningarinnar. Á seinni sýningunni fékk hann 1. einkunn, mjög góða umsögn og meistaraefni. Var hann einnig valinn annar besti rakkinn í opnum keppnisflokk.

Væntanlegt got

Hundarnir okkar, Íslandssólar Grímur og Töfra Hekla eiga von á hvolpum seinnipartinn í janúar 2008.

________