Hvolparnir eru tveggja vikna í dag

Hvolparnir eru nú tveggja vikna gamlir og hafa allir næstum fjórfaldað fæðingarþyngd sína. Þeir eru farnir að reyna að ganga og Dúfa varð fyrst til að opna augun í morgun og núna seinnipartinn opnaði Moli líka augun sín.