Hundasýningar
20/01/ 2008
Íslandssólar
Grímur fór á tvær hundasýningar um
helgina 19. - 20. janúar 2008. Hann fékk mjög góða
dóma og vann til verðlauna. Á fyrri sýningunni
fékk hann 1. einkunn, mjög góða umsögn og íslenskt
meistarastig. Var hann að auki valinn besti
rakkinn á sýningunni og var síðan valinn annar
besti hundur sýningarinnar. Á seinni sýningunni
fékk hann 1. einkunn, mjög góða umsögn og
meistaraefni. Var hann einnig valinn annar besti
rakkinn í opnum keppnisflokk.