blocks_image

Í þessum vígamannskassa er allt sem þarf til að gerast harðsvíraður sjóræningi. Kassinn hefur gersemar að geyma, þar á meðal sjóferðabók kafteinsins ógurlega, Vernharðs Víghöfða. Hún inniheldur alla hans myrku leyndardóma og er um leið fyrirtaks kennslubók fyrir alla upprennandi sjóræningja. Uppgötvaðu uggvænlega leyndardóma úthafanna sjö.
Í kassanum eru auk bókarinnar, kort, gullpeningar, krókur, leppur, flöskuskip, höfuðklútur, húðflúr, rýtingur og sjónauki.

Höfundur: Sue Unstead
Teikningar: Brian Lee
Þýðing: Orri Harðarson
Stærð: 24 cm á hæð, 19 cm á breidd.
48 blaðsíður
ISBN 978-9979-782-59-9
Verð kr. 2.490
Panta